Píla/Karókí

Píla í Keiluhöllinni!

Á Sportbarnum í Keiluhöllinni er nú komin frábær píluaðstaða! Nýjustu og bestu uppfærslur af gagnvirkum píluspjöldum sem telja stigin fyrir leikmenn! Hægt að velja um fjöldan allan af skemmtilegum gagnvirkum píluleikjum! Píluspjöldin eru 6 og geta allt að 8 spilað á hverju spjaldi samtímis. Verð per spjald kr. 3.990.-
Bókaðu þinn hóp í pílu á keiluhollin@keiluhollin.is eða í síma 511-5300.
 
 
 

 

Karókí í Keiluhöllinni

Við elskum karókí og höfum því opnað eitt glæsilegasta karókíherbergi landsins sem rúmar allt að 30 manns.
Karaókíherbergið okkar er búið nýju og frábæru karókíkerfi, þráðlausum hljóðnemum og "kick ass" hljóðkerfi.
Og af því að allir eru stjörnur þá erum við líka með svið fyrir þá sem syngja!
Bókaðu þinn hóp á keiluhollin@keiluhollin.is eða í síma 511-5300.

Sportbarinn í keiluhöllinni!

Sportbar á að hafa sál og hjarta. Sportbarinn í Keiluhöllinni er stappfullur allar helgar af fólki eins og þér. Pantaðu borð á keiluhollin@keiluhollin.is eða í síma 511-5300 og sjáðu leikinn sem skiptir þig máli.

Bókanir á viðburði og stórleiki fara fram á https://noona.is/keiluhollinsportbar

20 ára aldurstakmark er á sportbar.

Þeir sem drekka undir 20 ára aldir verður vísað úr húsi án endurgjalds vegna vörukaupa.

Boltinn í beinni

Upplýsingar um leiki í beinni útsendingu á Sportbarnum er að finna á Facebook síðunni okkar.

Keiluhöllin á facebook

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kranabjór og kokteilar

Við bjóðum uppá gott úrval af kranabjór ásamt því að vera með þéttan kokteilseðil. Hjá okkur finna allir eitthvað við sitt hæfi.

Boltatilboð

Þegar það er bein útsending á sportbarnum þá er boltatilboð á mat og drykk. Það er nefnilega betra að horfa á liðið sitt vinna með bragðlaukana hressa og káta (reyndar líka betra að sjá liðið sitt sigrað þannig, en við viljum minna ræða það).