Námskeið

Sumarnámskeið í Keiluhöllinni 2026! 🎉

Á SumarNámskeiði í Keiluhöllinni Egilshöll býðst krökkum á aldrinum 7-13 ára að taka þátt í skemmtilegu og fjölbreyttu námskeiði þar sem hreyfing, leikur og gleði fara saman. Námskeiðið er fyrir byrjendur og þau sem hafa áður prófað keilu og vilja bæta sig enn frekar.

Mikilvægt er að börnin komi með nesti og í léttum og þægilegum fatnaði.

Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu læra þátttakendur undirstöðuatriðin í keilu á skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Kennslan er blönduð leikjum og áskorunum svo að allir geti notið sín og upplifað árangur, óháð reynslu. Fjölbreytt dagskrá verður alla dagana, farið verður á:

  • SkautaSvellið
  • Next Level Gaming
  • Sambíó 

 

Dagsetning og tími:
Námskeiðin eru kennd viku í senn. kl.9:00 - 12:00 og/eða kl.13:00 - 16:00.

15 - 19. júní (4 dagar)
22. – 26. júní
29.júní – 3. júlí
6. – 10. júlí
13. – 17. Júlí
4. – 7. ágúst (4 dagar)
10. – 14. ágúst

Hvert námskeið kostar kr. 24.999 (4 dagar kr. 19.999) – Veittur er 10% systkinaafsláttur. Allir krakkar fá flotta námskeiðsboli frá Keiluhöllinni.

Leiðbeinendur:
Leiðbeinendur okkar eru starfsmenn sem allir hafa reynslu af vinnu með börnum og námskeiðshaldi, æfa keilu og elska sportið!

Í lok námskeiðsins verður svo haldið keilumót þar sem allir fá tækifæri til að sýna hvað þau hafa lært og gæða sér svo á gómsætum pizzum frá Shake&Pizza.

Frekari upplýsingar má nálgast í gegn um tölvupóst keiluhollin@keiluhollin.is

Bókaðu hér inná https://www.abler.io/shop/keiluhollin/namskeid/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQ3MDg=