Karfan er tóm.
Skilmálar
Gjafabréf - skilmálar
Gjafabréf Keiluhallarinnar og Shake&Pizza eru frábær gjöf. Hægt er að velja um stök bréf eða kaupa pakka sem inniheldur keilu, pizza, shake.
Pantanir á gjafabréfum eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Séu gjafabréf ekki til á lager mun skrifstofa Keiluhallarinnar hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma. Af öllum pöntunum sem dreift er af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts. Keiluhöllin ber samkvæmt þeim enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vörum í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Keiluhöllinni er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Keiluhöllin endurgreiðir ekki upphæðir sem eru keyptar í gjafabréfum. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.
Ekki er hægt að kaupa gjafabréf með öðru gjafabréfi.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Gleðipinnar hf. kt: 460215-0130, VSK nr 119366 Fossaleyni 1, 112 Reykjavík. keiluhollin@keiluhollin.is